logo
logotext34
  • Icelandic
  • English
 
Home
Hamarsey
Articles
Horses for Sale
Photo Gallery
Web Links
Contact Us
Photo of the day

logo_small

Gleðileg jól og farsælt komandi ár Print E-mail
laugardagur, 24 desember 2011

sollham1Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

God jul og godt nyttår.

Merry christmas and a happy new year.

Fröhliche weihnachten und ein gutes rutsch in neues jahr.

 

 

 
Hátíð og afkvæmi í fréttunum Print E-mail
sunnudagur, 27 nóvember 2011

hatideidfaxiUppáhaldshryssan hún Hátíð frá Úlfsstöðum var í úttekt á Eiðfaxa í vikunni. Hún á nú orðið fimm afkvæmi, og það sjötta undan Spuna frá Vesturkoti á leiðinni. Hátíð sem er fædd árið 2001 og er á tíunda vetri var haldið um vorið þegar hún var 5 vetra undir Álf frá Selfossi og fór svo í frí fljótlega eftir Landsmót 2006. 

 

Greinina má lesa hér Töltmyllur undan Hátíð

 

 

 

Read more...
 
Hestfolald með 121 í BLUPi til sölu Print E-mail
þriðjudagur, 22 nóvember 2011

gasellusonur1Gáski frá Hamarsey er undan Álfi frá Selfossi og 1. verðlauna hryssunni Gasellu frá Garðsá. Hann er fæddur í maí 2011, tinnusvartur, háfættur og reistur. Kjörið tækifæri til að ná sér í flott stóðhests- eða keppnishestsefni.

Álf þarf vart að kynna, að öllum líkindum á leið í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á næsta ári. Gasella er mikill skörungur, átti sinn hæsta dóm á Landsmóti 2008 á Hellu þar sem hún fékk meðal annars 8,5 fyrir fegurð í reið, háls og herðar og höfuð og 9,0 fyrir skeið, vilja og geðslag. 

Read more...
 
Selma og Álaborg fylfullar við Frakki Print E-mail
sunnudagur, 09 október 2011
1frakkur2Síðustu hryssurnar voru staðfestar með fyli nú á dögunum. Það eru þær Selma frá Sauðárkróki og Álaborg frá Feti sem fyljuðust við landsmótsstjörnunni Frakki frá Langholti. Frakkur gerði gott mót í sumar, fékk 9,03 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir tölt, vilja og geðslag, og 9,0 fyrir brokk, skeið, fegurð í reið og hægt tölt. 
Read more...
 
Röskva og Frosti á leið til nýrra eigenda Print E-mail
þriðjudagur, 06 september 2011

rskvafall2009bbHestasala hefur verið að vakna til lífsins á ný í haust. Nú nýlega seldum við Röskvu frá Sauðárkróki. Nýir eigendur eru vinir okkar á Skáni í Svíþjóð, Yvonne og Magnús á VitaVillan (www.stallvitavillan.se). Til hamingju með Röskvu. 

Frosti frá Hamarsey er grár 2ja vetra geldingur, undan Krumma frá Blesastöðum og 1. verðlauna hryssunni Föstu frá Hofi. Vinir okkar í Noregi, Inga og Johann Johnsen, festu kaup á honum og óskum við þeim til hamingju með efnilegan fola. 

 

Myndin er af Röskvu í frumtamningu 3ja vetra gamalli haustið 2009. Knapi er Eyrún Ýr Pálsdóttir. 

Read more...
 
Hamborg í fréttunum Print E-mail
þriðjudagur, 23 ágúst 2011

hamborgminnieidfaxiHamborg rataði í fréttirnar í dag, frétt um kynbótasýninguna á Mið-Fossum á eiðfaxi.is. Við erum náttúrulega mjög stolt af þessari fínu klárhryssu okkar sem er úr ræktun Brynjars Vilmundarsonar á Feti. Við keyptum hana svo til ótamda 4ja vetra gamla.

Viðja Hrund Hreggviðsdóttir og Erlingur Erlingsson eiga veg og vanda að tamningu Hamborgar og þjálfun. Erlingur sýndi hana í 7,99 í vor á Sörlastöðum í fantaformi. En þegar Erlingur fór utan til að sýna á HM voru góð ráð dýr. Leitað var á náðir Guðmundar Björgvinssonar sem sýndi móður Hamborgar, Álaborgu frá Feti, sem er í okkar eigu. Það er skemmst frá því að segja að þau smullu saman og útkoman þrjár 9,0 og aðaleinkunnin 8,14. 

 

Fréttin á www.eidfaxi.is

Read more...
 
Hamborg í 8,14 á Mið-Fossum Print E-mail
miðvikudagur, 17 ágúst 2011

hamborgfetisorlastadirlitilHamborg frá Feti fór í 1. verðlaun í forsýningu á síðsumarsýningu á Mið-Fossum í Borgarfirði. Knapi var Guðmundur Björgvinsson. Hún fékk meðal annars 9,0 fyrir stökk og vilja/geðslag og 8,5 fyrir aðra þætti hæfileika, fyrir utan skeið en Hamborg er klárhryssa. Á yfirlitssýningu í gær bætti hún um betur og fékk 9,0 fyrir fegurð í reið, og hækkaði líka hægt tölt upp í 8,5.

 

Hún var efst í flokki 6 vetra hryssna. 

 

Hamborg á Sörlastöðum í vor

Read more...
 
Hrafnarssonur undan Selmu Print E-mail
þriðjudagur, 26 júlí 2011

selmahrafnarssonur2011Selma frá Sauðárkróki kastaði í byrjun júlí þessum sæta bleikálótta hesti. Faðir hans er Hrafnar okkar, undan Orra og Hátíð frá Úlfsstöðum. 

 

Selma fór undir Hákon, stóra bróður Hrafnars. Valið var ekki erfitt. Folaldið sem við fengum undan Selmu og Hákoni í fyrra, folaldasýningasigurvegarinn og montrassinn hún Sóllilja frá Hamarsey, er eitt flottasta folald sem okkur hefur fæðst.

Read more...
 
Brúnn hestur undan Lindu frá Feti og Frakki frá Langholti Print E-mail
fimmtudagur, 21 júlí 2011

lindafrakkssonurLinda frá Feti kastaði sínu fyrsta folaldi í byrjun júlí. Brúnn hestur undan Frakki frá Laugavöllum varð raunin.

 

 

 

 

Linda er klárhryssa með þrjár níur. Frakkur stóð sig vel á nýliðnu Landsmóti, 9,03 fyrir hæfileika, þar af tvær 9,5 og fjórar níur.

Read more...
 
Flott Hugmynd Print E-mail
fimmtudagur, 21 júlí 2011

hugmynd2juni2011Hugmynd frá Sauðárkróki er 5 vetra hryssa sem við eigum og höfum mikla trú á. Hún er undan gæðingnum Hætti frá Þúfu sem hlaut 8,68 í aðaleinkunn í kynbótadómi í vor. Móðir Hugmyndar er Otursdóttirin Viðja frá Sauðárkróki sem fékk á sínum tíma 8,5 fyrir tölt, brokk, skeið og vilja. Við stefnum með Hugmynd í dóm á næsta ári. 

 

Hugmynd og Hannes í túninu á Hamarsey.

Read more...
 
Hrund köstuð - verður þessi grá? Print E-mail
mánudagur, 20 júní 2011

hrunddottir1Hrund frá Árbæ, 1. verðlauna Keilisdóttir, kastaði í gær, á kvenréttindadaginn 19. júní hverju öðru nema bleikálóttri hryssu undan Héðni frá Feti. Við teljum að þessi verði grá með tímanum, enda óvenju dökk og með nokkur ljós augnhár. En hvað sem litnum líður er þetta flott folald, með vel settan háls og miklar hreyfingar. 

 

Hrund verður haldið undir Hákon okkar í sumar (www.hakon.is)

 

 

 

Read more...
 
Hátíð frá Úlfsstöðum kom með hryssu Print E-mail
mánudagur, 06 júní 2011

hatidardottirHátíð frá Úlfsstöðum kastaði í síðustu viku. Hún kom með þriðju hryssuna í röð. Glæsilega, háfætta og framfalleg, rauða hryssu.

Nú er bara spurning um hvort hún verði áfram rauð eða fari að grána. Faðirinn er grár, gæðingurinn Héðinn frá Feti. En okkur finnst líklegt að hún verði rauð áfram. Við eigum þessa Héðinsdóttur, en Helgi vinur okkar á Ragnheiðarstöðum, sem á helminginn í Hátíð með okkur fær næsta folald. Hátíð fór í sæðingar við Álfi frá Selfossi á Sandhólaferju og verður sónarskoðuð í næstu viku. 

 

 

 

 

Read more...
 
Hamborg nærri 1. verðlaunum Print E-mail
mánudagur, 30 maí 2011

hamborgfetisorlastadirlitilHamborg frá Feti, klárhryssa undan Álaborg og Stíganda, fór í flottan dóm á Sörlastöðum í síðustu viku. En hún var grátlega nærri 1. verðlaunum, 7,99 í aðaleinkunn. Hamborg er hreyfingafalleg hryssa, með mikið framgrip og fótaburð. Hún fékk góðar dómsumsagnir bæði hvað varðar byggingu og hæfileika. Hún er viljug og kraftmikil, með sína hæstu einkunn 9,0 fyrir stökk.

Hún hlaut meðal annars 8,5 fyrir háls/herðar, bak/lend, samræmi og hófa og 8,0 fyrir fótagerð og prúðleika. Í byggingu 8,18. 

 

Hamborg á Sörlastöðum í síðustu viku.

Read more...
 
Falleg folöld undan Þrym Print E-mail
laugardagur, 28 maí 2011

thrymssonurfors1

Þrymur frá Ragnheiðarstöðum er fjögurra vetra foli í okkar eigu ásamt vinum okkar á Ragnheiðarstöðum, Helga og Ella og Viðju í Langholti. Guðmundur Daníelsson fékk Þrym lánaðan í fyrrasumar þar sem hann fyljaði um 12 hryssur. Og árangurinn lætur ekki á sér standa. Gullfalleg folöld komin í heiminn. 

 

Folöldin eiga það sammerkt að vera myndarleg og litskrúðug, framfalleg og hreyfingagóð.

 

 

 

Read more...
 
Hamborg á Sörlastöðum Print E-mail
fimmtudagur, 26 maí 2011

jorpmeriKlárhryssan snjalla, Hamborg frá Feti, fór í fínan dóm á Sörlastöðum í vikunni. Fékk 8,5 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, vilja og geðslag. Fyrir byggingu hlaut hún 8,18 og 7,94 í aðaleinkunn. Við bíðum spennt eftir yfirlitssýningu, teljum að hún eigi þónokkuð inni.

 

 

 

Hamborg frá Feti, knapi Erlingur Erlingsson

Read more...
 
Gasella köstuð - Brúnn Álfssonur Print E-mail
sunnudagur, 22 maí 2011

gasellusonur1Gasella frá Garðsá, 1. verðlauna hryssa sem við erum með í ræktun kastaði myndarlegum brúnum Álfssyni þann 10. maí síðastliðinn. Það eru þónokkrar væntingar gerðar til þessa fola enda foreldrarnir með úrvalskosti, en ólíka þó. Hann er með BLUP 121.

Það er ekki komið nafn á kappann ennþá. En uppástungurnar eru nokkrar, svo sem...

 

 

Gasella og Álfssonurinn.

Read more...
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Next > End >>

Results 1 - 24 of 215
 
Hamarsey ehf. | kt: 600607 1460 | Klapparás 10, 110 Reykjavík, Ísland | Gsm +354 864 1315 | This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it