logo
logotext34
  • Icelandic
  • English
 
Forsíða
Hamarsey
Greinar
Hestar til sölu
Myndir
Tenglar
Hafa samband
Mynd dagsins

logo_small

Hamborg - efnileg klárhryssa Print Senda
fimmtudagur, 09 september 2010

hamborgaugust2010_33Hamborg frá Feti er undan Álaborgu frá Feti og Stíganda frá Leysingjastöðum. Hún var ekki tamin að ráði fyrr en á 5. vetri og var orðin nokkuð góð í sumar sem leið. Hún var þó ekki tilbúin í hæfileikadóm en fór í byggingardóm og stóð sig með prýði. Fékk 8,5 fyrir háls/herðar, bak/lend, samræmi og hófa, í byggingareinkunn 8,06. Hamborg er efni í flotta klárhryssu, með góðar grunngangtegundir, hentar vel í keppni.

 

Hamborg, 5 vetra í ágúst 2010. Knapi Erlingur Erlingsson.

 

 

Lesa meira...
 
Per í heimsókn Print Senda
föstudagur, 03 september 2010

perfastafantasiaPer, vinur okkar frá Noregi, og annar eigandi Hamarseyjar kom í heimsókn til landsins í ágúst. Það var mikið brallað, meðal annars farið með hryssu í byggingardóm, farið með Föstu frá Hofi undir Héðinn í Árbakka, farið með Hrund og Lindu í sónarskoðun, í heimsókn á Grænhól, á Blesastaði og til Olil Amble.

 

 

Per með Föstu auk Fantasíu frá Hamarsey, undan Álfi frá Selfossi.

 

 

Lesa meira...
 
Gott mót í Hólminum Print Senda
fimmtudagur, 02 september 2010

lindahannesstykktltVið höfum verið með annan fótinn í Stykkishólmi í sumar, þar sem Hannes hefur verið við vinnu á sjúkrahúsinu þar. Að sjálfsögðu tóku við nokkur hross með og þjálfuðum. Það er líflegt hestamennska í Stykkishólmi og Hólmarar höfðingjar heim að sækja. Þegar Hestamannafélagið Snæfellingur hélt þar gæðingakeppni, tölt og skeið tókum við þátt og höfðum gaman af. Mótið var yfir einn dag, forkeppni fyrri partinn og úrslit eftir hádegi.

 

 

Linda frá Feti í B-flokki gæðinga, knapi Hannes Sigurjónsson.

Lesa meira...
 
Svipmyndir frá Selfossi Print Senda
miðvikudagur, 01 september 2010

saragaed2010aSeinnipartur sumars hefur verið skemmtilegur og allt of lítill tími unnist til að setja inn fréttir. Mótahald rúllaði skemmtilega af stað og af krafti eftir hestapest. Okkar hross eru velflest orðin hraust á ný og nú krossar maður putta að þau smitist ekki aftur þegar haustar. Við fórum á nokkur mót í sumar að keppa, hér koma nokkrar myndir frá því.

 

 

 

Inga og Sara frá Sauðárkróki í A-flokki gæðinga á Selfossi.

 

Lesa meira...
 
Hákon stendur sig vel Print Senda
miðvikudagur, 18 ágúst 2010

hakonflag2Hákon, þriggja vetra foli undan Álfi og Hátíð, hefur verið í hryssum í sumar. Í vor var hann á húsnotkun í Austurási en nú í sumar í hólfi í Flagbjarnarholti í Holta- og landsveit. Það hefur gengið vel hjá kappanum. Hann fyljai 9 hryssur á húsi og er nú búinn að fylja 16 í hólfinu. Hann er feitur og pattaralegur, fer greinilega vel með sig í hólfinu en sinnir hryssunum vel. Sónarskoðað verður frá honum og hann tekinn úr merum um miðjan september.

 

 

 

Lesa meira...
 
Sara fylfull við Tenóri Print Senda
miðvikudagur, 18 ágúst 2010

sarajuly1Sara frá Sauðárkróki er fylfull við Tenóri frá Túnsbergi.  Sara, sem er 8 vetra gömul, hefur verið eitt okkar aðal reiðhross síðustu ár auk þess að taka þátt í keppni og sýningum. Hún er nú komin í folaldseignir og á vonandi eftir að gefa okkur spennandi afkvæmi.

 

Sara frá Sauðárkróki í júlí 2010, knapi Erlingur Erlingsson.

 

Lesa meira...
 
Fantasía frá Hamarsey - síðasta folald ársins Print Senda
miðvikudagur, 11 ágúst 2010

fantasia44Þó það sé nú frekar seint í rassinn gripið að fæðast í byrjun ágúst þá á hún nokkuð góða daga framundan, amk samkvæmt veðurspá næstu daga, það eru hlýindi í kortunum. Fantasía frá Hamarsey á hún að heita, dóttir Álfs frá Selfossi og Föstu frá Hofi. Fantasía er fjórða einlita folaldið sem við fáum í ár undan skjóttum feðrum. Þremur hryssum var haldið undir Álf frá Selfossi og einni undir son hans, hinn rauðskjótta Hákon. Við fengum tvær rauðar hryssur og fífilbleikan hest undan Álfi og eina bleikstjörnótta hryssu undan Hákoni.

Lesa meira...
 
Röskva í 1. verðlaun fyrir byggingu Print Senda
miðvikudagur, 04 ágúst 2010

roskvajuli2010bRöskva frá Sauðárkróki, 4 vetra, fór í 1. verðlaun þegar hún var byggingardæmd á Hellu í síðustu viku. Röskva er stór og vel þroskuð, mældist 143 cm á herðarkamb. Hún fékk 8,06 fyrir byggingu en við teljum að hún eigi mikið inni þar, til dæmis fyrir háls/herðar, bak/lend og hófa.

Röskva frá Sauðárkróki í júlí 2010, knapi Ólafur Andri Guðmundsson.

 

 

Lesa meira...
 
Sara í 9,0 fyrir skeið Print Senda
þriðjudagur, 03 ágúst 2010

saramidskeid2Sara frá Sauðárkróki fór í 9,0 fyrir skeið á Miðsumarsýningu á Gaddstaðaflötum í síðustu viku. Sara, sem hingað til hefur verið keppt á í tölti og fjórgangi er mikill gæðingur og í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Sara er nú á leið í folaldseignir, er fylfull við snillingnum Tenóri frá Túnsbergi.

Hún hefur hæst hlotið 8,31 fyrir byggingu og 8,28 fyrir hæfileika. Sara er undan heiðursverðlaunahestinum Hróðri frá Refsstöðum og Sunnu frá Sauðárkróki.

 

Sara á flugskeiði, knapi Erlingur Erlingsson.

Lesa meira...
 
Röskva 4vetra á leið í byggingardóm Print Senda
föstudagur, 23 júlí 2010

roskvajuli2010a

Röskva er flink fjögurra vetra hryssa. Hún er undan Hætti frá Þúfum, keppnishesti Mettu Manseth, sem er undan Eið frá Oddhóli og ræktunarhryssunni Lygnu frá Stangarholti. Móðir Röskvu, Sletta frá Sauðárkróki, hefur verið að gefa gott, hún er undan heiðursverðlaunahestinum Anga frá Laugarvatni og Hervöru frá Sauðárkróki sem var undan heiðursverðlaunahrossunum Hrafni frá Holtsmúla og Síðu frá Sauðárkróki.

Röskva frá Sauðárkróki, knapi Ólafur Andri Guðmundsson. Ólafur Andri hefur séð um þjálfun Röskvu síðastliðnar vikur, en hann er yfirtamningamaður í Austurási.

 

Lesa meira...
 
Álaborg köstuð - Glannaleg Hróðursdóttir Print Senda
mánudagur, 19 júlí 2010

al1Hún er heldur skrautleg, Hróðursdóttirin sem Álaborg frá Feti kastaði í síðustu viku. Hún er rauðglámblesótt leistótt á öllum fjórum fótum. Hún verður svo sannarlega til að poppa upp litaflóruna í tryppahópnum. Álaborg fer undir Krák frá Blesastöðum í vikunni.

This little gal is very flassy, a splash gene chestnut with a blaze and socks on all fours. A daughter of the 1. prize mare Álaborg frá Feti and honorary prize stallion, Hróður frá Refsstöðum. She will definately spice up the color trend of the youngsters at Hamarsey. Álaborg has a reservation by Krákur frá Blesastöðum and is going there this week.

Lesa meira...
 
Geislandi Sóllilja á Hamarsey Print Senda
þriðjudagur, 06 júlí 2010

sollilja1Hún er virkilega heillandi, bleikstjörnótta hryssan sem við fengum undan Selmu frá Sauðákróki og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum fyrir um mánuði síðan. Hún hefur erft mikið frá ömmu sinni, Hátíð frá Úlfsstöðum, það sést svo ekki er um að villast á höfðinu og svipnum.

 

 

Sóllilja tekur sprett í túninu á Hamarsey.

 

 

Lesa meira...
 
Svo fylfullar - So very pregnant Print Senda
mánudagur, 05 júlí 2010

fastapregnantTvær hryssur eru eftir ókastaðar á Hamarsey. Fyrstu verðlauna hryssurnar Fasta frá Hofi og Álaborg frá Feti. Fasta er fylfull við Álfi frá Selfossi og er búið að panta rauðskjótta hryssu undan henni.

Við höfum nefninlega verið frekar einlit í sumar, fengið tvö einlit undan Álfi og eina stjörnótta undan Hákoni (rauðskjóttur). Þannig að það er kominn tími á litskrúðugt folald.

 

Fasta, kominn á 10. mánuð. Ingólfsfjall í baksýn.

 

Lesa meira...
 
Þjálfun hafin að nýju Print Senda
föstudagur, 02 júlí 2010

ingasarahamarseyjuny2010Hóstapestin er að mestu gengin yfir hjá okkur á Hamarsey. Okkar hross fengu pestina frekar seint, eða í byrjun maí og síðar. Fyrst smituðust hrossin sem við vorum sjálf með í þjálfun í Hafnarfirði, en seinna hryssurnar sem voru hjá Ella og Viðju í Langholti. Sara frá Sauðárkróki og Linda frá Feti eru komnar í þjálfun. Sara er komin í Langholt og er stefnt með hana í kynbótadóm í lok júlí. Hún er með 8,25 í aðaleinkunn en við teljum hana eiga töluvert inni. Linda er enn á Hamarsey og í trimmi þar um sinn, stefnt er með hana í keppni síðsumars.

 

Inga og Sara á Hamarsey í vikunni.

Lesa meira...
 
Morgunteygjur Print Senda
fimmtudagur, 01 júlí 2010

sararoskvahamarseyjuny2010Þær teygðu heldur betur úr sér eftir nætursvefninn einn morguninn síðastliðna helgi þegar við komum að þeim öllum steinsofandi á Hamarsey. Þetta eru hryssurnar sem voru í þjálfun í vetur auk 6 veturgamalla hryssna.

 

 

Sara (standandi) og Röskva (liggjandi) geifla munninn, geispa og teygja á kjálkaliðnum...enda miklum tíma varið í það að bíta...bíta bíta bíta gras gras gras.

 

Lesa meira...
 
Heiður frá Hamarsey Print Senda
mánudagur, 28 júní 2010

hrund2010cHrund frá Árbæ, 1. verðlauna Keilisdóttir, kastaði fallegum fífilbleikum hesti undan Álfi frá Selfossi í síðustu viku. Hann fékk nafnið Heiður frá Hamarsey. Hrund er mikil stóðhestamóðir, Heiður er fjórða hestfolaldið sem hún færir okkur. Það má lesa meira um Hrund hér. Við fórum með Hrund á Fet til móts við höfðingjann Hróður frá Refsstöðum sem tók vel á móti mæðginunum. Má sjá myndir frá því með því að smella á Lesa meira...

 

Heiður frá Hamarsey, fífilbleikur.

Lesa meira...
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 24 af 164
 
Hamarsey ehf. | kt: 600607 1460 | Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík, Ísland | Gsm 864 1315 | Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.