|
|
|
|
|
|
|
|
|
Álfsdóttir komin í heiminn á Hamarsey |
|
|
|
Þriðja folaldið kom í heiminn um helgina, það var alrauð Álfsdóttir undan Gasellu frá Garðsá. Það má lesa meira um Gasella með því að smella hér: Gasella frá Garðsá.
Sú stutta hefur ekki hlotið nafn ennþá en samkvæmt okkar hefð ætti það að byrja á G.
Hún er með hátt settan háls eins og mamman sín og virðist Gasella ætla erfa sinn fallega og granna frampart sterkt í gegn. Fótaburðurinn var líka alveg í lagi, brunaði um valllendið á stórstígu stökki, brokki og tölti.
Gasella fer að öllum líkindum undir Álf aftur í sumar.
|
|
|
| |
Hamarsey ehf. | kt: 600607 1460 | Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík, Ísland | Gsm 864 1315 |
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
|
|