Álfsdóttir komin í heiminn á Hamarsey

gasellatoctherÞriðja folaldið kom í heiminn um helgina, það var alrauð Álfsdóttir undan Gasellu frá Garðsá. Það má lesa meira um Gasella með því að smella hér: Gasella frá Garðsá.

Sú stutta hefur ekki hlotið nafn ennþá en samkvæmt okkar hefð ætti það að byrja á G.

Hún er með hátt settan háls eins og mamman sín og virðist Gasella ætla erfa sinn fallega og granna frampart sterkt í gegn. Fótaburðurinn var líka alveg í lagi, brunaði um valllendið á stórstígu stökki, brokki og tölti.

 

Gasella fer að öllum líkindum undir Álf aftur í sumar.

gaselladaughter1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

gaselladaughter2