| Góð Hugmynd |
|
Hugmynd frá Sauðárkróki, knapi Mette Manseth.
Hugmynd er sterklega byggð og stór 4 vetra hryssa.
Það er óhætt að segja Hugmynd hafi komið skemmtilega á óvart. Vinna og alúð Gísla og Mette skein í gegnum hryssuna, vel tamin, yfirveguð og öguð. Gangtegundirnar verða jafnar, töltið flott, brokkið mjög sterkt og skeiðið galopið. Hugmynd fór vel útúr hóstapestinni sem hefur geisað og hafði Mette á orði að hún væri það hross sem hefði minnst veikst á Þúfum. Annars var mikið líf á Þúfum, riðið út á fullu og hóstapestin greinilega á hröðu undanhaldi í Skagafirði.
We went up north this weekend to check on our 4 year old mare Hugmynd fra Saudarkroki. She has been in training at Þufur, by Mette Manseth and Gisli Gislason. The fotos speak for themselves, very powerful young mare, lot of willingness and all gaits wide open and strong. This one is a keeper and the aim is set for Landsmot 2011.
|