| Svo fylfullar - So very pregnant |
|
Við höfum nefninlega verið frekar einlit í sumar, fengið tvö einlit undan Álfi og eina stjörnótta undan Hákoni (rauðskjóttur). Þannig að það er kominn tími á litskrúðugt folald.
Fasta, kominn á 10. mánuð. Ingólfsfjall í baksýn.
Álaborg, sú jarpa, er fylfull við Hróðri frá Refsstöðum. Undan henni væri til dæmis gaman að fá jarptvístjörnótta hryssu, með leista...það má láta sig dreyma. Við hlið hennar stendur Hviða frá Ingólfshvoli, bleikblesótt. Hún var geld eftir að hafa verið hjá Aroni frá Strandarhöfði í allt fyrrasumar. Hviða er hins vegar fylfull nú, ca 20 daga fyl við gæðingnum Tenóri frá Túnsbergi.
Það eru vinir okkar á Krákuengi (www.kraehenweide.at) í Austurríki sem eiga Hviðu og fylið í henni, við höfum hins vegar fengið að halda henni í tvígang. Fyrst undir Adam frá Ásmundarstöðum sumarið 2004, úr því kom Reykur, móálóttur, og svo í fyrra kastaði Hviða gullfallegri bleiktvístjörnóttri hryssu, Júlíu frá Hamarsey, undan Auði frá Lundum. Tvö fyrstu afkvæmi Hviðu hafa verið sýnd í kynbótadómi og bæði hlotið 1. verðlaun.
|